World of Sunna and Sandra.. where the showerhead is the woman's best friend;)
P�?�?�?�??�?�?�â�?��?��?�?â�?� �?¢â�??¬â�??¢�?�?�?
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1791 dögum
29.10.2007 18:45:09 / Sandra

ónýtt

jæjaaa...ekki nóg með að allar myndirnar sjást ekki á síðunni, þá er bara allt hitt farið líka...

síðan er orðin bæði dauð og ónýt

 

Enn þökk sé myspace (sem allir eru orðnir háðir núna) þá erum við ekki alveg horfnar úr internetheiminum hahah :D

myspace.com/sandrahjaltalin

myspace.com/sunnakristin

ciao*


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.10.2007 19:28:58 / Sunna

Hægðarsaga vikunnar

Sunna heiti ég og ég kúka ennþá í buxurnar mínar! Dagurinn í dag er sérstaklega einkennandi fyrir buxnakúkinn, en ég einmitt er ekki búin að gera annað en að pissa og kúka í brækurnar síðan kl hálf 10 í morgun. Málið er að ég mætti í fyrsta tíma, fór heim í gatinu mínu og svaf síðan óvart bara til 3...ég var ekkert lítið pirruð þegar ég fattaði að ég væri búin að missa af verklegum efnafræðitíma en eiginlega bara fegin að sofa spænskutímann af mér;)

Óviðjafnanlegur blúbbsari

Helgin var samt fín.. föstudagurinn fór í að passa og síðan bara snemma að sofa. Afróæfing og bíó á laugardaginn og djamm um kveldið. Það var mjög gaman en við Sandra beiluðum báðar á sniðugu mönunum okkar. Síðan rifum við Ingu upp úr rúminu til að sækja okkur niður í bæ, hún hefur örugglega hugsað: ohh stelpur ég dýrka ykkur svo mikið, takk fyrir að leyfa mér að sækja ykkur. Ég þori að veðja það.

Sjöan góða...hún var samt ekki úr osti

Mig langar til útlanda.

Ég er að fara í 2 próf á fimmtudaginn og ég er ekki byrjuð að læra. Spurning um að fara að kaupa sér pampers?

Soffía ég + þú í bleyjustríð?

Hann Bergur átti líka afmæli á sunnudaginn og við óskum honum auðvitað til hamingju með það:D

Fataskápurinn minn. Hann er að springa, en samt langar mig í fleiri föt. Það er ógeðslega ömurlegt að sjá ógeðslega flotta flík útí búð en geta ekki keypt hana útaf því að maður þarf ekki á henni að halda eða það sem verra er...að eiga ekki pening fyrir henni eða það sem enn verra er...að eiga ekki pening fyrr en næsta sumar!

Draumalífið mitt, næstum því (+djamming)

En jæja ætli ég sé ekki búin að búlla nóg í bili...ég er farin að hlakka mjög til næstu helgar en ég treysti á mína elskulegu vini að halda mér vakandi næstu daga fram að mánaðarmótum.

Bleee

Jójó siggalafó - Sunna Kristín

» 7 hafa sagt sína skoðun

15.10.2007 10:37:05 / Sandra

loksins

Eftir miklar áskoranir hef ég ákveðið að setja inn eitt blogg!

Á föstudaginn elduðum við stelpurnar yndælis kjúklingarétt a la Sandra :D Og feit og góð súkkulaði kaka í eftirrétt NAMM :P

*Ég las í vikunni um daginn að súkkulaði minnkaði stress! ég vissi það ekki?? svoo nú get ég borðað endalaust súkkulaði samviskulaust, lit að losna við stressið sem fylgir þessum Bvítans skóla...!

Laugadagskvöldið fórum ég og Ingiburger (INGA) að kaupa nammi og halda áfram Scrubs maraþoninu :D geggjó kósí.. WRONG WRONG WRONG WRONG..hahaha, It just doesn´t get old!! OK smá einkahúmor...hihi:D

Og vá ég hef öruglega aldrei nýtt sunnudag í svona mikið eins og ég gerði í gær! Þar sem ég var laus við alla þynnku (þökk sé því að ég var ekkert að drekka þessa helgi) þá vaknaði ég bara "hress" í vinnuna, svo í ræktina og svo bara lærði ég um kvöldið! ekkert smá dúgleg. Þarna inná milli horfði ég reyndar á Mean girls, hehe alltaf jafn skemmtileg gelgjumynd.

Hey! akkurar 2 mánuðir í ammælið mitt! jíbbí, alltaf jafn gaman að eiga afmæli í seinasta mánuði ársins :S

U.þ.b. 2 mánuðir í Skólalok!! jibbí

Síðast en alls ekki síst, u.þ.b. 2 mánuðir í Dóminíska Lýðveldið!! :D Jeehú

Á dagská í dag:

-Mamma náði einhvernveginn að draga mig í þáttinn Ertu skarpari en skólakrakki eða eikkað þannig. Ég er nú því miður ekki að fara að taka þátt en ég verð þarna einn áhorfandinn hahaha. Það verður spes.

-Svo loksins er ég að fara að sækja bílinn minn úr viðgerð. Fór með hann á föstud. en gleymdi að sækja hann í lok dagsins svo ég er ekki búin að hafa neinn bíl alla helgina :S Það er nú samt ekkert það slæmt því þá fær maður bara porshe-inn lánaðann ;)

-Svo er það afró í kveld:P

Næsta helgi verður djamm, Þorbergur verður 21 árs og líklegt er að hann haldi smá party :P Váa get ekki beðið eftir að djamma eikkað, þar sem þar var ekkert djamm þessa helgi OG við beiluðum á Tyllidagaballin, ég er alls ekki nógu ánægð með þetta...

Og jáww.. ég er ennþá eftir að setja inn myndir frá einu laugad. kvöldi sem við vorum að drekka heima hjá mér, þær eru nú reyndar frekar ómerkilegar :P (reyndar mjög skemmtileg, 20 mynda, sería af Sunnu og Apríl) hahaha.

BÆBÆ-ég er svöng.....

» 10 hafa sagt sína skoðun

01.10.2007 23:44:02 / Sunna

ööö hæ?

Góóóða kvöldið...

Hafið þið einhverntímann hugsað um hvað þið eigið góða vini og ættingja og minningar með þeim og langað bara að senda öllum sms sem ykkur þykir vænt um, þótt þið hafið ekki séð eða hitt manneskjuna í ár eða tvö? Ég fékk þannig tilfinningu áðan og ég fékk sona broskítl í mallann minn í leiðinni:] Allt í einu fylltist hjartað mitt af þvílíkri ást bara og engar drama/sárar/leiðinda hugsanir komu upp!

Ég held til dæmis að ég segi mömmu minni og pabba alls ekki nógu oft hvað ég elski þau mikið og hvað ég sé ótrúlega heppin að eiga þau að, þótt það líði ekki sá dagur að þau tönnslist á því hvað þau séu stolt af manni og elski mann mikið og knúsi mann til bana. Ég meina þótt maður hafi ekki alltaf sömu skoðanir á hlutunum og þau, og þau tuði mann í drasl stundum þá má maður ekki gleyma hvað þau eru að hjálpa manni þvílíkt með því að bara leyfa manni að búa góðu húsi með fríu fæði svo lengi sem maður vill. Þá er ég ekki að tala um að borga skólann og skólabækur og mestallan rekstur af bílnum manns þótt þau hafi ábyggilega fullt annað við peningana sína að gera...mér finnst ég ógeðslega heppin að eiga þau! Takk mamma og pabbi, þið eruð sko bestust í heimi;*

Steinunn Eva og Móeiður Kara eru litlu sætustu systur mínar. Ég væri leiðinlegt ofdekrað einkabarn ef þær hefðu ekki komið undir. Þá hefðu líka kannski þurft einhverja aðra til að finna íslyktina af prumpinu mínu og vera fórnarlömb nammisvindlsýki minnar. Hver átti þá að gera alla dansana við Backstreet boys lögin með mér og vera litla sjálfstæða knúsudýrið mitt sem byrjaði að bulla áður en hún lærði nafnið sitt? Ég gæti sko alls ekki verið án þeirra þótt þær séu eins og þær eru;*

Vinirnir mínir! Ég dýrka þá alla út af lífinu. Gamla sem nýja. Ég hefði sko ekki viljað eiga aðra vinahópa heldur en þessa skemmtilegu og frábæru sem ég eignaðist bæði á Selfossi og hér í Rvk. Hvernig væri ég ef ég hefði ekki hitt Agnesi og Hrafnhildi í Suðurenginu og auðvitað alla hina krakkana í götunum í kring (við vorum bara aðaltöffararnir). Atli Hjörvar var líka og verður alltaf litla barbíkrúttið mitt tíhíh (hann má helst ekki sjá þetta viðurnefni), hef bara aldrei vitað um dreng sem fann sig svona rosalega í Barbie. En ég held að ég hefði orðið leiðinleg smápíka ef hann hefði ekki dregið fram prakkarann í mér með því að pissa á epli og gefa leiðinlega nágrannastráknum og hengja þungt drasl í ljóskrónu þangað til hún dytti, viljandi. Síðan þegar ég fór í skóla og bekkurinn minn var algjört met...eiginlega bara samansafn af steiktustu börnum í bænum. Ég á bara góðar minningar þaðan...auðvitað nokkrar gelgjudrama minningum líka, en maður hlær bara af þeim í dag tíhí. Ég hefði heldur ekki getað valið betri félagsskap en kórinn og fótboltann, eignaðist fullt af góðum vinkonum þar! Fyrsta önnin í fjölbraut var líka ógeðslega skemmtileg...ég mun aaaldrei gleyma þessari önn!! það var einhvernveginn bara ALLT gaman og fyndið haha, enda var maður kannski soldið yfir steikarmörkunum þá (komin yfir það núna). Mongólítagengið klikkaði sko ekki híhí. Síðan flutti ég við "mikinn" fögnuð sjálfs míns til Reykjavík og neitaði að lifa lífinu þangað til að ég var hálfflutt á Selfoss aftur (það fékk enginn frið fyrir mér þar). Það var annað hvort að flytja aftur eða leita mér að dýrum til að skemma hérna megin, sem ég síðan gerði. Held að mér hafi líka bara tekist það ágætlega...endaði allavega í frábærum vinahóp og þeim hefur gengið geggjað vel að aðlagast mér hehe (vona ég, allavega eru þau flest farin að ropa og hlæja einsog manneskjur...laglegt). Þau halda mér við efnið dags daglega og svona þegar ég er soldið gúgúgaga, þið eruð æði. En það er líka kominn tími til að fara að bæta letina við að hitta Selfosselskurnar mínar. Takk allir sem eigið þátt í því að lífið mitt er eins skemmtilegt og það er, þið eruð snillingar;*

Jæja...ég mæli með því að allir fari að knúsa foreldra sína, vini og ættingja oftar og segja þeim hversu mikils virði þeir eru ykkur. Ég ætla allavega að gera það. JÆJA KOMIÐ NÓG! Vonandi deyjum við öll saman brosandi eldgömul undir einni stórri heklaðri sæng, syngjandi bíbí og blaka og étandi ömmupönnsur.

HVAÐ ERU MÖRG VÆMNIGUBB Í ÞVÍ?

 Kv. hamingjusami mongólítinn


» 23 hafa sagt sína skoðun

25.09.2007 16:38:59 / Sandra

Hello my friend

Nenni ekki að læra svo ég blogga já!

Laugadagurinn var snilld :D Apríl og Davíð héldu afmælið sitt saman og geggjó stuð. Auðvitað fórum við í Marmaris drykkjuleikinn okkar Sunnu. Manispilið var algjörlega að gera sig, Kalli þurfti að syngja einsöng og Apríl þurfti að pissa öfugt á klósettinu (auðvitað náðist mynd af því ;D) haha.

Svo var haldið niðrí bæ! Vorum frekar seint í því og held að við vorum komin í leigubílinn kl. hálf 4....Annars var bara geggjað gaman og auðvitað var splæst skoti á afmælisbörnin. Þegar halda átti heim sem einn hópur, fundum við ekki Sunnu. Hmmm með hverjum og hvernig fór hún "heim"...þið verjið að spurja hana ;P Við hin fengum nú bara far hjá einhverjum gaur sem talaði arabísku. Ég vildi endilega fá hann til að skrifa "ég elska þig" á blað á arabísku svo ég gæti sent bróðir mínum sem er í Egyptalandi að læra arabísku. En það varð ekkert úr því :7

Í dag er ég búin að stússast full. Mætti bara í einn tíma í skólanum, sweet.

Fór í ræktina, með bílinn í skoðun, kaupa efni til að sauma mína egin peysu í fatasaum...hlakka til að sjá hvernig það kemur út haha.

Í tilefni dagsins þá koma nokkur skemmtileg mismæli hérna:

Frændi minn átti einu sinni að koma barninu sínu í rúmið, því mamman var á fundi. Eitthvað dróst háttatíminn og allt í einu rankar hann við sér og segir við barnið: "Þú átt að vera farinn að sofa fyrir lifandis löngu" og drífur sig að hátta barnið og koma því í bólið. Skömmu seinna kom mamman heim og kíkir inn í herbergi og finnur barnið þar hálfvolandi. Þegar hún spurði hvað væri að, var svarið: "Pabbi sagði að ég ætti að sofa hjá lifandi slöngu."

Svo þegar ég var lítill var verið að fara skíra frænda minn við vorum mætt einhvað tímalega og sátum út í bíl að bíða ... ég orðinn frekar pirruð og hreiti útúr mér :
MAMMA hvenar á að kirkja Gunnar

Ég var einu sinni að keyra fram hjá heimili fyrir einhverfa með vinkonu minni þegar ég ætlaði að tjá mig um hvað þetta eru mikil krútt. Ég vissi ekki hvort ég ætlaði að segja dúllurnar eða ljúfurnar svo ég hrópaði bara
"Ææææ... sjáðu dúfurnar!!"

Vinfólk mitt bjó í Vesturbænum. Það bankar upp á lítil stúlka sem var að hjálpa stóru systkinum sínum að selja klósettpappír fyrir KR og styrktarfélag lamaðra og fatlaðra. Þetta var þó aðeins of flókið fyrir litla 6 ára stúlku. Hún gekk hús úr húsi og spurði: "Viltu kaupa klósettpappír til styrktar vangefnum KR-ingum!"

 HAHA

Anyway...Þarf að fara að læra bráðum svo ég geti notið mín að glápa á spólu í kvöld. Langar að leigja Blades og glory! hún er snilld hihi :D

 

Og fyrir þá sem eru að pæla að fara í bíó þá mæli ég algjörlega með Chuck and Larry! Ég hef sjaldan hlegið jafn mikið í bíó hahah, ég ætla feitast að kaupa þessa mynd þegar hún kemur út ;D

Líka mjög gaman að horfa á myndir með svona heitum gaurum, eins og Adam Sandler :D

Það eru svona nokkrir gamlir kallar sem eru samt geggað sexy :haha:

Dæmi:

 Jamie foxx

 Hugh Grent

Adam Sandler

 Peter Gallagher (Sandy Cohen)

Heitir gaurau :D sammála??

En jæja, langdregið blogg, farin að læra. bless í bili



 

 

» 12 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 23:33:53 / Sunna

Bleeeee

Hafiði pælt í því hvað það er kalt á Íslandi? Hafiði pælt í því að það er búið að rigna stanslaust í 4 vikur núna? Hafiði yfirhöfuð hugsað út í það hvað það er leiðinlegt að búa á Íslandi??? Ég er búin að hugsa soldið of mikið um það síðan ég kom heim frá Kalkúnalandi (turkey)! Ekki að mig langi að búa þar heldur bara í einhverju hlýrra og spennandi landi! Haha vá ég þarf að fara að draga mig uppúr þessum skít og byrja að dansa...

Helvíti laglegur þessi...

Fórum reyndar til Akureyrar um helgina svona til að brydda uppá hversdagsleikann...ótrúlega skemmtilegt stelpuroadtrip með góðri tónlist og góðum móral, leigðum herbergi á gistiheimili og skemmtum okkur konunglega á Palladiskóteki á Sjallanum. Greyfinn stóð fyrir sínu og við fengum okkar skammt af ostabrauðstöngum bæði á laugardeginum og sunnudeginum...daaamn mig langar í! Þurfum að endurtaka þetta aftur í vetur og taka jafnvel brettin með þá:D game?

Síðan á mánudaginn átti Hjördís  mín afmæli, til hamingju með það aftur krúttið mitt;* Og í gær varð hún Apríl okkar líka 19 ára og við fórum út að borða á Friday's í tilefni þess, borðuðum og borðuðum þangað til að við nánast sprungum og sumar okkar voru ennþá saddar í morgun:D

Nú eru 2 leiðinlegustu dagar vikunnar eftir, fimmtudagur og föstudagur. Ég gæti alveg ælt yfir þessum skóladögum því ég er til hálf 5 í skólanum. En helgin verður góð fyrir utan vinnu og lærdóm....afmælispartý Aprílar á laugardaginn og það verður örugglega eitthvað stuð á liðinu þá;)

En ég er farin að hugsa aftur um þetta ógeðslega veður og mikinn heimalærdóm svo að ég er bara farin að sofa! Sorry með leiðinlegt og þunglynt blogg, ekki smitast. Góða nótt pjöllur og tillar...

*SUNNA KRISTÍN


» 11 hafa sagt sína skoðun

18.09.2007 12:02:42 / Sunna

AFMÆLI=D

Hún á afmæli í dag, hún á afmæli í dag, hún á afmæli hún Apríl, hún á afmæli í dag!

Hún er 19 ára í dag, hún er 19 ára í dag, hún er 19 ára hún Apríl, hún er 19 ára í dag!

Hún hefur stækkað í nótt, hún hefur stækkað í nótt, hún hefur stækkað hún Apríl, hún hefur stækkað í nótt......Vííííííjjjjjjjj:D

Afmlisbarnið ásamt Heiðu Ösp
Eigðu ógeðslega góðan dag litla krúttið okkar;*
Þínar vinkonur,
Sunna, Sandra, Inga og Soffía:D:*

» 3 hafa sagt sína skoðun

17.09.2007 10:49:42 / Sandra

Aureyri

Blessuð og sæl

Ég er bara ein í gati þar sem allir eru barasta farnir heim að sofa eða eikkað og skilja mig eftir:( Ég vill ekkert fara heim til mín þar sem það er ekkert rafmagn þar!! Já prófiði að gera ykkur tilbúin fyrir skólan með dimmt inní herberginu ykkar og ekki einusinni hægt að nota sléttujárn:cry:... Mér leiðist ekkert smá og nenni ekki að læra svo ég ætla að blogga um helgina :D

Helgin var geggjó skemmtó. Okkur datt í hug að skella okkur a AK á laugadeginum. Við pöntuðum gistiheimili, létum Sófí kaupa miða í forsölu á Pál óskar í sjallanum og þá vorum við búnar að redda okkur kósý roadtrip og snilldar djammi :D

Snemma á laugadeginum var haldið á stað, eftir píningarfulla afró æfingu og fljótustu sturtu sem ég hef nokkurntíman farið í. Greyið Inga var að drepast úr þynnku eftir heljarinnar djamm deginum áður. Við náðum ekki lengra en á Mosó þegar við þurftu að stoppa svo hún gæti gubbað! 8| Litla grey...en þökkum feita gaurnum sem hjálpaði ælunni að koma á stað:lol:

Anywayyy...Auðvitað fórum við beinustu leið á Greifann þegar við komum á akureyri og pöntuðum að sjálfsögðu ostabrauðstangir í forrétt! Eftir það fórum við á gistiheimilið, drukkum smá og kvörtuðum að við hefðum gleymt spilum til að geta farið í Marmarisdrykkjuleikinn okkar.

  

Pall on the Sjall var snilld. Fyrir utan litla dýrið sem kom, kleip, klóraði og bókstaflega hékk í háriðu á Apríl, Huldu og Nínu:evil:! En ég held að það ungabarn fær að vakna með magaverk eftir hælaskóna hennar Apríl og skallbletti á hausnum eftir Nínu. Litla grey...

Eeeen jæjaaa, þessi ferð var algjör snilld! Það eru svona nokkur lög sem minna mig á þessa ferð: sorry blame me, með Akon. Pictures með Kid rock, Apologise með Timbaland og hinum gaurnum. En meest lagið I belive I can. Því lagi var sko nauðgað og ég held að við séum allar með auman háls og hása rödd eftir að hafa öskrað úr okkur lungun með laginu.

Svoo á Apríl Sól bara ammæli á morgun :D...gerum eikkað gaman þáw!!!!!

OK, farin að læra :S

 Sandra kveður með bros á vör hihih

bæ og bless...harðkex
ps. einhverjar ómerkilegar myndir frá AK ferðinni koma inn bráðlega.

 

 

 

» 7 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 12:39:15 / Sunna

Hæjó!

Hæjó.. Við Sandra og Steinka litla syss fórum á eina afródans æfingu í Kramhúsinu í gær! Þetta er tær snilld, hreyfingarnar einum of kreisí og maður fær nógu mikla útrás fyrir 3 næstu daga:D Ég mana alla til að prófa þetta, án efa mesta flipp dansíþrótt sem ég veit um.

Eeeeníwayyy...Fórum á föstudaginn nokkrar út að borða á Vín og Skel, ógeðslega fancy gellur og ætluðum að fá okkur fínan mat svona í tilefni ekki neins;) Mættum á staðinn og höfðum ekki hugmynd um að þarna fengist einungis vín og skel:P Hehe við pöntuðum okkur humar og hvítvín...síðan ógeðslega góða og feita súkkulaðiköku og Pina colada mmm;) Skelltum okkur víst líka á Chris Lake en ég ætla ekki að fara útí frekari málalengingar hvernig afgangurinn af kvöldinu var. Myndirnar eru einmitt á leiðinni;)

 

Chris Lake                  Humarinn góði:D

Laugardagurinn fór í að gera eitthvað sem ég var búin að lofa sjálfri mér og geðheilsu minnar vegna að hætta að gera...en það var að vinna í Bónusvídjó! Það tekur á taugarnar og sérstaklega ef maður er einn á vakt, engin klósetthurð og maður er þunnur...ég ætla ekkert að tala um allan kúkinn sem þurfti að vaxa inn þann daginn fjúff! En um kvöldið rúllaði ég á Selfoss og hafði það kósý með Hjördísi, Hrafnhildi, Degi og Jóa=)

Bónusvídjó í sinni réttu mynd að ofsækja mig!!!

Þessir dagar byrja allir eins, ógeðslega þunglamalegir og óspennandi...enda er ég rangur maður á röngum tíma og þegar ég er í skólanum þá er ég í vitlausu húsi. Soleiðis er það bara.. ég er viss um að ég hafi fæðst í kolvitlausu landi...ég pantaði +30 gráðu heitt en ekki -15!

Eeeen ég nenní ekkí að búlla meira í dag...enda þetta á góðu sakni til Marmaris!

Ps. Ég auglýsi eftir heitum gæja sem vill bera skólatöskuna mína, nudda á mér bakið eftir þörfum, þrífa herbergið mitt og helst læra fyrir mig líka.

» 8 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 14:19:56 / Sandra

aha

 Sælar elskurnarr ;*

Nú er liðinn 1 og hálf vika síðan ég kom úr draumaferðinni en éger samt enn með fráhvarfseinnkennin frá djamminu, sólinn og yndislegheitunum :S

FISHBOWL..akkuru er það ekki á íslandi? 8|
Í gúddí fíling!

Á laugdagskvöldið var chillað með smá áfengi. Fengum okkur heimatilbúið töfrateppi:D Algjör snilldardrykkur. Þetta kvöld endaði með þunglyndiskasti þegar maður leiddi hugann að því hve skemmtilegt djammið var á Marmaris, og að aður gæti aldrei djammað jafn skemmtilega á kalda Íslandi. NEjjj segi svona :P --Annars eru örfáar myndir frá þessu kvöldi. 

 
 
*******

Allavega þá er skólinn bara byrjaður á fullu..Ég er með 21 einingu og það er svo eins gott að ég falli ekki í neinu þessa önn! Annars er fínt að vera komin í skólann. Vona bara að það verði eitthvað almenninlegt félagslíf til að halda manni við skólann :P

 

En jæja svoo er það Chris Lake á föstud. Ætla maður skelli sér ekki á það :D

 Rosa sætur strákur hér á ferð :lol:

 

*ég er svo að fara að setja inn myndir frá laugadagskvöldinu (sem eru svona 15 stk myndir ;) ) og svo set ég líka inn myndir frá einni af útileigunum sem við fórum í sumar :D

Sandra kveður með bros á vör :D

 

 

 

 

» 8 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 21:30:15 / Sunna

Ferðasaga!

Ég trúi ekki að ég liggi undir sæng í fullt af fötum og sé actually KALT, að það sé rigning úti, skítakuldi og að ég fari í skólann á MORGUN. Já það var frekar skrítið að vakna í morgun og geta ekki stigið út í heitara loft en í herberginu sem ég svaf í, farið í sundföt, borið á mig sólarvörn og út í sólbað...DJÖFULL VAR ÞETTA SWEEEET!

Marmaris var snilld í bala. Við Sandra lögðum af stað frá MK með rútu, ásamt fleiri MK-ingum, pollslakar á miðað við marga. Sumir voru orðnir asskoti hellaðir þegar við vorum ekki lengra komin en álverið í Straumsvík en það er annað mál. Í Leifsstöð splæstum við á okkur einni vænni passoa og byrjuðum aðeins að sötra til að finna ilminn af komandi snilldardjammferð! Ferðin þangað er ekkert til að tala um, enda var hún löng og leiðinleg og gerir þessa ferðasögu boring. Eftir 14 tíma bið í rútu sem lagði líf okkar í hættu og flugvél sem lak, komum við loksins á glæsilega 3 stjörnu hótelið okkar, Club Ilayda. Ekki var herbergið okkar upp á marga fiska og herbergisþjónustan var alveg í stíl við það. Ég reiknaði nú samt ekki með því að við myndum hanga mikið inni í þessari ferð og á endanum tókst mér að hugga Söndru sem var slet ikke sátt með aðstæður:D

Sundlaugargarðurinn var nú samt heavy næs, stór laug með fullt af bekkjum...sem við fengum þó takmarkað afnot af vegna frekju í bretum á svæðinu. Djammið þarna var hellað og að sjálfsögðu var allur tími notaður í drykkju...eða þú veist.. mestallur;) Þetta var ógeðslega skemmtileg ferð, þrátt fyrir nokkur óhöpp, sem betur fer ekki hjá okkur poppz, og hún mun klárlega sitja í mínu ferska minni um aldur og ævi:P

Ég nenni ekki að skrifa öll smáatriði, en hér koma nokkur gullkorn og punktar úr ferðinni:

  • "Blekó leeegó" - orðasamsetning yfir hversu fullur maður var kvöldið áður
  • "Svekk og pirr" - Orð Heklu yfir þau bögg sem komu upp.. ALLIR fengu þetta á heilann:P
  • "Ég verð svo sexual þegar ég er full" - Steinunn full að afsaka káfið sitt á Söndru haha
  • "Ég fýla masókistakynlíf" - Steinunn um leið og hún beit í öxlina á Helenu
  • Þegar Elsa ældi í svefnsóffann okkar:P
  • Daginn eftir þegar Sunna sniffaði ælukoddann síðan kvöldið áður...hahah ojjjj ógeð maður!
  • FISHBOWL!!! - Drykkur ferðarinnar #1
  • BURGAZ bananalíkjör - Drykkur ferðarinnar #2
  • FULLNÆGING a la Steinunn - Drykkur ferðarinnar #3!
  • We drinqua - Sá græni.. Drykkur ferðarinnar #4
  • Kynlíf á ströndinni - Drykkur ferðarinnar #5!
  • Magic carpet - drykkur ferðarinnar # 6!!
  • Sundlaugarpartýið á club Ilayda þegar öllum var hent oní laugina, prófuðum dauðasta hóteldiskó aldarinnar sem var samt ógeðslega skemmtilegt og enduðum kvöldið með froðudiskói...skemmtilega djamm!!
  • Þegar Sunna og Sandra drukku stundum (soldið oft) pínu mikið og reyndu að vera Coyote beautiful (ekki ugly), dansandi uppá barborðum og reyna að komast á samning hjá barþjónunum...we dance, you splæs alcohol hahaha:D
  • Þegar það var stútað 2 fishbowlum á hálftíma.. Sunna komst ekki lengra en barinn það kvöldið!
  • Þegar Sunna og Sandra keyptu sér magadansbelti og kúrekahatta á leiðinni niður í bæj og djömmuðu með það allt kvöldið:D
  • Gaurinn í röndótta bolnum sem káfaði á saklausum Íslendingum í froðudiskói og elti okkur hálfa leiðina heim af djamminu...krrreeeepy!
  • "Ég hef aldrei" kvöldið haha
  • Hekla, ertu í hekluðum skóm? - Sunna húmoristi, alltaf fyrst með brandarana!
  • VIÐ HITTUM ÖRBÖKU!!!!
  • Þegar Sandra komst á séns með heitaheita myndavélagaurnum haha:D
  • "Who is this mongolite?" - Sunna við heitaheita myndavélagaurinn þegar hann sýndi henni myndir af sér blindbeyglaðri í sundlaugarpartýi
  • "Eigum við að stela þessum?" - tyrkjabörn eru einfaldlega of sæt!
  • Þegar Sandra spurði hvort kjúklingurinn væri "finished"
  • Sunna og Sandra að rífast á lokakvöldinu yfir því að Sunna væri ekki að passa nógu vel að enginn æddi inná hana á klóinu því lásinn var bilaður. Haha það endaði þó vel og við tókum þá ákvörðun í sameiningu að hætta að rífast og fara á barinn að fá okkur drykk:D
  • GALLEON - Skemmtistaður ferðarinnar!
  • Þegar Sunna og Sandra fóru í rennibrautina saman á einni vindsæng hahah fórum aldrei aftur í rennó eftir það.
  • Þegar nokkrar stelpur voru að möndla heiiiita barþjóninn sem var alltí einu búin að mæla sér mót við þær allar sömu nóttina:D
  • Þegar við vorum að fara að singja í karokí og Helena ætlaði að byja um möppuna með lögunum í og sagði: "Can i see the map?" hahah

Jæja ég man ekki meira í bili, samt alveg fulltfullt fleira...Sandra þú bætir kannski inní ef þú manst e-ð meira=) Takk fyrir frábæra ferð allir! Ég er ekki frá því að ég sé komin með fráhvarfseinkenni frá sólinni og hitanum...og tanið mitt er fokking farið:( En ég er farin að sofa, fyrsti skóladagurinn á morgun og allt að gerast! Bæjóó..

-Sunna K.

MYNDIR KOMA INN BRÁÐUM!!!

Sandra bætir við:

Þessi ferð var mesta snilld sem ég hef upplifað leengi :P

Ég get varla byrjað að tjá mig um hvað ég sakna djammsins mikið. Aðaldjammgatann þarna er Barstreet sem er svona "laugavegur" bar milljón sinnum skemmtilegri :D Því miður eru skemmtistaðirnir bara opnir til kl.4 en fyrir allvöru töffara djammaranna er hægt að fara á froðudiskó eftir það. Froðudiskó er eitt að því skemmtilegast sem hægt er að gera, fyrir þá sem hafa ekki upplifað það hihih...

Maturinn þarna er ekki það besta í heimi og fer mjög illa í magann á fólki. Ég frétti af mörgum sem fengu matareitrun. Af kjötinu en ekki kjúklingnum...(kjúllinn var greinilega finished haha).

Sölumennirnir þarna eru ógeðslega ágengir. Þeir bara halda í hendurnar á manni ef maður ætlar að labba út. Sumir eru það uppáþrengjandi að þeir reka mann bara í burtu þótt maður vilji skoða í búðinni :S ekii nógu sniðúgt

Allavega  þá ætla ég að setja inn myndir í kvöld. Samt eru eiginlega bara myndir af því sama. Öll kvöldin voru svo svipuð. Það byrjaði alltaf með smá herbergisparty, svo var það hótelbarinn sem var splæst á fancy kokteila eða fishbowl :D Svo var haldið singjandi í bæjinn, og ég nennti ekkert að vera að dröslast með myndavélina í bæjinn.

jæja bæjo..

 


» 11 hafa sagt sína skoðun

09.08.2007 13:25:23 / Sandra

Marmaris

Marmaris á morgun!!!!!

Búin að pakka Sunna??

Ég pakkaði niður bleikum uppblásnum sundkút ;D til að fara með á ströndina...efast að það megi vera með hann í sundlauginni...En það er attílæ, þar sem það er vatnsrennibraut í staðinn til að skemmta sér í!! :D

 

Djamm Djamm Djamm 

 

Djöfull verður næs að vakna á morgnanna í 29-30 stiga hita, klæða sig í bikini, kaupa sér rjómalagað pinacolada eða einhverna litríkan drykk og svo skella sér í sólbað!! halda síðan drykkjunni áframm þegar labbað verður niðrí bæ að verzla eikkað smátterí...og svíðan heljarinnar party um kvöldið! hahan VERY NICE...skella sér á eikkað froðuparty líka...;P

 

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

27.07.2007 20:51:51 / Sandra

jamm ojæja..

 jæjaaa..

Held að það sé bara örugt að segja að þessi síða sé komin í frí þangað til að skólinn byrjar aftur hehe:P

Maður nennir bara ekki og hefur ekki tíma til að blogga....(nema smá núna ;)

 Svo eru BARA 2 VIKUR Í MARMARIS....það verður mesta snilld í heimi...get ekki beðið :D:D

 Við poppcornin fengum okkur svo tattoo síðastliðinn laugadag. mjög flott:P Koma maybe myndir af þeim later...

 

-Ok mér kvíður fyrir morgundeginum, það á að vera einhver svakaleg æfing kl.9-11!

Eftirfarandi bréf er það sem við fengum sent frá bootcamp þjálfurunum...frekar mikil geðveiki....

Kæri Boot Camp meðlimur.

Næstkomandi laugardag er útiæfing og ætlum við að sjá ÞIG þar.

Æfingin fer fram fyrir utan Laugardalshöllina og er mæting eigi síðar en 08:55!

Engar afsakanir, ekkert skróp, ekkert vesen, Það eiga ALLIR að mæta á laugardaginn.

Þeir sem mæta ekki fá að finna fyrir því síðar.

Dæmi um refsingu: 500 súperfroskar á 3 mín. Ef þú vilt prófa það – slepptu þá að mæta á laugardaginn.

Léttar veigar í boði Nature´s Best þegar herlegheitunum er lokið.

Nú er valið hjá þér:

Viltu sofa í nokkra tíma í viðbót á laugardaginn og í staðinn ekki geta gengið í viku eftir refsingarnar.....

...eða viltu upplifa mestu sæluvímu veraldar á magnaðri útuæfingu með fallegu fólki.

Með sólskinskveðju

Boot Camp þjálfarar og ættingjar.

....

En jamm og jæja...

Er farin að gera eikkað gaman með mínum heittelskuðu

bæjooo

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 23:02:07 / Sandra

Long time no blogg...

Vá ég er ekki búin að blogga neitt i alltof langan tíma...Ég bara hef ekkert nennt því...

En jæja...ágætlega mikið að segja frá :P

Ér búin að fara í útileigu seinustu 3 helgar :D....sumarið er sko að byrja vel!

Fór fyrst á Akureyri á bíladaga. Algjör snilld. Fengum frítt inn á allar sýningar. Erum sko með sambönd 8)....Fórum held ég 3 sinnum á Greifann (mæli feitt með ostabrauðstöngum), svo einu sinni á Bautann. Fórum í sund og við Sunny skemmtum okkur konunglega í rennibrautinni með litlu krökkunum. Erum svo orðnar þokkalega algjör celeb eftir Jóa Fel atriðið á söngvakeppninni í fyrra takk fyrir! haha.

Næsta helgin var ættamót á Seyðisfirði. Keyrðum sko hringinn í kringum landið þá helgi. Sú helgi var geggjó skemmtó en það sem stóð mest uppúr var þegar ég stal kayak! muhaha. Kalli, Aron bróðir og Baddi frændi mönuðu mig til að taka kayak frá kayak leigunni, og ég gerði það. Þegar ég var komin lengst út á vatnið með spýtu til að róa, þá kom gaurinn sem átti þetta og strákarnir hlupu í burtu og skildu mig eftir :evil: Gaurinn sem átti þetta sagðist vera búin að hringja á löggun en sem betur fer gat annar frændi minn róað hann niður. Mér fannst þetta allt mjög fyndið. Og já hahahah. Ríkið á Seyðisfirði er bara opið í klukkutíma á dag hahah, frá 17-18!

Svoo þessi helgi var skellt sér í bústaðarferð með litlum fyrirvara. held ég hafi aldrei verið jafn óundirbúinn í útileigu :P En þetta reddaðist og var algjör snilldarferð, skoðuðum gullfoss og geysi, grilluðum, drykkjuleikur, love making, snilldar þynnkumatur...margt margt fleira hahah.

Og snillingurinn sem ég er þá tók ég ekki eina einustu mynd....ekki nógu sniðugt.

-Og já, fyrir þá sem vilja vita er ég að fara í slétt permonett á þriðjud. og mun vera með slétt hár, jeeej, komin með leið á liðuðu hári.

En jæjaa....komin tími fyrir beauty-sleep. Þarf að vakna fersk í skrifstofu vinnu á morgun. Bæjó


» 8 hafa sagt sína skoðun

11.06.2007 22:44:27 / Sunna

Góður dagur í lífi Sunnu...

Jæjjaa ég er búin að læra mikið af deginum í dag:D 

Að hugsa þegar ég klæði mig í föt á morgnanna: Hefur þú lent í því að klæða þig á morgnanna án þess að vera mikið að hugsa og fatta síðan seinna um daginn þegar þú ferð á klósettið í vinnunni að þú fórst í nærbuxurnar á röngunni?

Ekki mæta ósofin í skólann á kvöldin: Að sofa ekki í rútunni á leiðinni úr vinnunni í bæjinn þegar það eru skóladagar (mán, mið, og fös), er uppskrift af hauslausum stærðfræðitímum.

Aldrei að hlæja að reiðum fitubollum: Sérstaklega ekki með munninn fullan af pistasíuhnetum! haha en það kom einmitt fyrir mig áðan þegar pistasíuhneturnar mínar trufluðu óvart efnafræðitímann hjá 2 heitum gellum....

Að syngja með ping pong laginu á leiðinni heim úr skólanum, geggjað ánægð með að vera búin að meika daginn og hugsa til þess að vera í fríi á morgun:D Það kemur öllum í gott skap get ég sagt þér!!

Að ég þarf virkilega mikið að komast í klippingu og litun: verst að það er alltif mikið að gera hjá mér ALLTAF!

Ooooooooooooog síðan lærði ég líka að maður á aldrei að stríða kóngulóm því að þá skríða þær inná stuttbuxurnar þínar og reyna að nauðga þér í rassinn!

AKUREYRI EFTIR 4 DAGA:D:D:D


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5
Dagsetning
23. febrúar 2012